Conseil de l'Europe
  Quoi de neuf ?  |  A propos du CPT  |  Membres  |  Etats  |  Visites  |  Documents  |  Base de données

Evrópunefnd um varnir gegn pyndingum
og ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu (CPT)

[ Íslenska / Icelandic / Islandais ]


CPT yfirlit


Varnir gegn pyndingum á frelsissviptum einstaklingum í Evrópu

CPT (Nefnd um varnir gegn pyndingum) skipuleggur heimsóknir á staði og stofnanir til þess að hafa eftirlit með meðferð á frelsissviptum einstaklingum. Meðal þessara staða eru fangelsi, lögreglustöðvar, meðferðarstöðvar fyrir unglinga, miðstöðvar innflytjenda í haldi, geðsjúkrahús, þjónustu- og dvalarheimili o.s.frv.

CPT-sendinefndir hafa ótakmarkaðan aðgang að stöðum þar sem frelsissviptir einstaklingar eru og heimild til að fara um slíka staði án hindrana. Þær eiga viðtöl í einrúmi við frelsissvipta einstaklinga og aðra sem veitt geta upplýsingar.

Að lokinni hverri heimsókn sendir CPT ítarlega skýrslu til viðkomandi ríkis. Skýrslan inniheldur niðurstöður nefndarinnar og tillögur, ábendingar og beiðni um upplýsingar. CPT fer einnig fram á ítarleg svör við álitaefnum sem fram koma í skýrslunni. Þessar skýrslur og svör eru grundvöllur  áframhaldandi viðræðna við viðkomandi ríki.

Fullt heiti CPT-nefndarinnar er „Evrópunefnd um varnir gegn pyndingum og ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu“. Heitið beinir athygli að tvennu: Í fyrsta lagi er starfssviðið Evrópa og í öðru lagi fjallar hún ekki eingöngu um „pyndingar“ heldur einnig ýmiskonar aðstæður sem gætu  talist  „ómannleg eða vanvirðandi meðferð eða refsing“.

Kerfi heimsókna

Sendinefndir, yfirleitt skipaðar nokkrum  nefndarmönnum CPT, stunda heimsóknir og eru í fylgd starfsfólks nefndarinnar og, ef nauðsyn krefur, annara sérfræðinga og túlka. 

Heimsóknir CPT-sendinefnda eru farnar reglulega (yfirleitt á u.þ.b. fjögurra ára fresti), en auk þess þegar sérstök ástæða þykir til.

Nefndin verður að tilkynna viðkomandi ríki þá fyrirætlun sína að heimsækja staði á landinu. Eftir boðun er CPT-nefndinni heimilt að heimsækja hvenær sem er og án fyrirvara staði þar sem einstaklingar kunna að hafa verið sviptir frelsinu.

Samvinna og þagnarskylda

Alþjóðasamningurinn (“Sáttmálinn”) að baki CPT felur í sér meginreglurnar um samvinnu og þagnarskyldu.

Gögn CPT á opinberum vettvangi

Skipulag CPT

Forsaga

Fullgildingar


Nánari upplýsingar


  ^

Contactez-nous   |   Presse   |   www.cpt.coe.int